Klasarós (Floribunda)
'Queen Elizabeth' er stórkostlega falleg rós sem þarf helst að fá að vaxa í gróðurhúsi hér á landi. Hún á mjög erfitt uppdráttar utandyra, en verður mjög stór og glæsileg í gróðurhúsi. Blómin eru mjög stór og líkjast blómum terósablendinga, enda er hún stundum flokkuð til þeirra. Hún var fyrsta rósin í flokki grandiflora rósa sem er rósaflokkur sem er aðeins viðurkenndur í Bandaríkjunum, en það eru stórblóma klasarósir. Hún var ræktuð af Dr. Walter E. Lammerts í Bandaríkjunum 1951 og er afkvæmi terósablendingsins 'Charlotte Armstrong' og floribunda rósarinnar 'Floradora'.