Terósarblendingur (Hybrid Tea)
'Blue Parfum' er terósarblendingur ræktaður af Mathias Tantau Jr. í Þýskalandi 1978. Hún blómstrar fylltum, mikið ilmandi, lillabláum blómum. Hún er því miður of viðkvæm til að vaxa hér úti og jafnvel helst til viðkvæm fyrir kalt gróðurhús. Hún óx frekar illa í köldu gróðurhúsi hjá mér.