Terósablendingur (Hybrid Tea)
'Chicago Peace' er sport af rósinni 'Peace' sem uppgötvaðist í Bandaríkjunum einhverntíma fyrir 1960. Hún var markaðssett í Bandaríkjunum 1962. Hún er tvílit eins og 'Peace', en litirnir eru mun sterkari, djúp apríkósugulur með bleikum jöðrum í fyrstu, en litirnir fölna svo í fölgulan og bleikan. Hún er álíka viðkvæm og 'Peace', gekk kannski heldur betur úti í beði, en náði aldrei að blómstra mikið. Hún byrjaði að blómstra í lok ágúst, þrátt fyrir dekurmeðferð. Hún nýtur sín því best í gróðurhúsi eða gróðurskála.