Terósablendingur (Hybrid Tea)
'Nostalgie' er þýskur terósablendingur ræktaður af Hans Jürgen Evers 1995. Hún blómstrar fylltum blómum sem ilma ekki mjög sterkt, en ilmurinn er mjög ferskur og góður og minnir mig á hindber. Blómin eru kremhvít með rauðbleikum jöðrum þegar þau opnast fyrst og ef það er nógu hlýtt, þá roðna þau með aldrinum. Hversu dökkur rauði liturinn verður, fer eftir hitastigi. Þessi rós er helst til viðkvæm til að vaxa úti og nýtur sín best í gróðurhúsi.