Terósablendingur (Hybrid Tea)
'Whisky Mac' er yndsfögur rós sem minnir töluvert á 'Troika'. Hún er terósarblendingur, ræktuð af Mathias Tantau, Jr. í Þýskalandi 1968. Blómin eru fyllt með sterkum ilmi í ferskjugulri og bleikri litablöndu. Blómin opnast appelsínugul og verða bleik með aldrinum. Hún er viðkvæm og á best heima í gróðurhúsi.