Þyrnirósarblendingur (Hybrid Spinosissima)
'Mary Queen of Scots' er þyrnirósarblendingur af óþekktum uppruna. Hún er talin til Rosa x reversa blendinga, en Rosa x reversa er náttúrulegur blendingur þyrnirósar (Rosa pimpinellifolia) og fjallarósar (Rosa pendulina). Hún blómstrar einföldum, fölbleikum blómum sem eru dekkri í miðju. Þetta er harðgerð runnarós sem þrífst best á sólríkum stað í vel framræstum, sendnum jarðvegi.
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009