Rósakirsi (Kúrileyjakirsi)
'Ruby' er afbrigði af rósakirsi sem blómstrar ljósbleikum blómum fyrir laufgun í lok apríl - maí. Aldinin eru smá og svört, en yfirleitt þroskast nánast ekkert af aldinum. Það þrífst best í sól eða hálfskugga í þokkalega góðu skjóli. Kjöraðstæður eru vel framræstur, frjór jarðvegur. Þrífst mjög vel og blómstrar árvisst, þó fjöldi blóma sé misjafn eftir árferði.