
R

Ranunculus - Sóleyjar
Sóleyjar, Ranunculus, er stór ættkvísl um 600 tegunda í sóleyjaætt, Ranunculaceae, með heimkynni víða um heim. Latneska heitið þýðir lítill froskur og vísar í að flestar tegundir vaxa í rökum jarðvegi. Flestar blómstra að vori eða snemmsumars, oftast gulum blómum en nokkrar tegundir blómstra hvítum eða grænleitum blómum. Þær þrífast yfirleitt best í sól þó skriðsóleyin ástkæra vaxi vandræðalaust hvar sem er, jafnvel á stöðum sem sjá aldrei til sólar.
-
Ranunculus aconitifolius - silfursóley
-
Ranunculus acris - brennisóley
-
Ranunculus repens - skriðsóley

Rhodiola - Svæflur
Svæflur, Rhodiola, er ættkvísl í helluhnoðraætt, Crassulaceae, með heimkynni í fjallendi og á heimskautasvæðum norðurhvels, meirihlutinn í Kína. Ein tegund, burnrót vex villt á Íslandi.

Rodgersia - Bronslauf
Bronslauf, Rodgersia, er lítil ættkvísl fimm tegunda í steinbrjótsætt, Saxifragaceae, sem allar eiga heimkynni í A-Asíu. Þær eru helst ræktaðar vegna stórra, oft bronslitaðra laufblaða, en þær blómstra treglega hér á landi. Þær vaxa meðfram lækjum í skuggsælum skógum í heimkynnum sínum og þurfa því rakan jarðveg en verða fallegri ef þær fá sól part úr degi.
