top of page
Mýrastigi

'Robin Hood'

sh. 'Robin des Bois'

Moskusrósablendingar (Hybrid Musk)

Uppruni

Rev. Joseph H. Pemberton, Bretlandi, fyrir 1927

ónefnd fræplanta x 'Miss Edith Cavell' (floribunda)

Hæð

60 - 90 cm

Blómlitur

dökkbleikur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

síblómstrandi, júlí - september

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

viðkvæm

Moskurósablendingar urðu til við blöndun terósablendinga við klifurrósina Rosa multiflora.  Flestar komu fram á Bretlandi og í Þýskalandi milli 1913 og seinni heimsstyrjaldarinnar.  Þetta eru síblómstrandi klifurrósir í heitara loftslagi með stórum klösum af frekar smáum blómum sem geta verið einföld eða fyllt og yfirleitt ilmandi.  Þær verða yfirleitt ekki mjög hávaxnar hér, en þurfa þó stuðning, því greinarnar standa ekki undir stórum blómklösunum. Þær eru líklegast frekar viðkæmar hérlendis, þó óljóst sé hversu margar sortir hafi verið reyndar hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 6b

Skandínavíski kvarði: H5


Moskusrósablendingur með smáum, hálffylltum, dökkbleikum blómum í margblóma klösum. Er viðkvæm og þarf gróðurhús til að dafna vel. Getur lifað úti með miklu dekri og vetrarskýlingu, en blómgun er þá ótrygg.  Þarf stuðning eins og aðrar moskusrósir.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page