'Robin Hood'
sh. 'Robin des Bois'
Moskusrósablendingar (Hybrid Musk)
Origin
Rev. Joseph H. Pemberton, Bretlandi, fyrir 1927
ónefnd fræplanta x 'Miss Edith Cavell' (floribunda)
Height
60 - 90 cm
Flower color
dökkbleikur
Flower arrangement
hálffyllt
Flowering
síblómstrandi, júlí - september
Fragrance
meðalsterkur
The age
-
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
viðkvæm
Moskurósablendingar urðu til við blöndun terósablendinga við klifurrósina Rosa multiflora. Flestar komu fram á Bretlandi og í Þýskalandi milli 1913 og seinni heimsstyrjaldarinnar. Þetta eru síblómstrandi klifurrósir í heitara loftslagi með stórum klösum af frekar smáum blómum sem geta verið einföld eða fyllt og yfirleitt ilmandi. Þær verða yfirleitt ekki mjög hávaxnar hér, en þurfa þó stuðning, því greinarnar standa ekki undir stórum blómklösunum. Þær eru líklegast frekar viðkæmar hérlendis, þó óljóst sé hversu margar sortir hafi verið reyndar hér.
Foreign hardness scales:
USDA zone: 6b
Skandínavíski kvarði: H5
Moskusrósablendingur með smáum, hálffylltum, dökkbleikum blómum í margblóma klösum. Er viðkvæm og þarf gróðurhús til að dafna vel. Getur lifað úti með miklu dekri og vetrarskýlingu, en blómgun er þá ótrygg. Þarf stuðning eins og aðrar moskusrósir.