'Alexander MacKenzie'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Origin
Dr. Felicitas Svejda, Kanada, 1985
'Queen Elizabeth' (terósablendingur) x ónefnd fræplanta
Height
um 60 - 100 cm
Flower color
rauðbleikur
Flower arrangement
fyllt
Flowering
lotublómstrandi, júlí - september
Fragrance
daufur
The age
-
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól
Soil
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
nokkuð harðgerð, HRF - 3
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Foreign hardness scales:
USDA zone: 3b
Skandínavíski kvarði: H5
Nútíma runnarós úr kanadísku Explorer-seríunni, ræktuð af Dr. Felicitas Svejda. Hún blómstrar fylltum, rauðbleikum blómum.
Alexander MacKenzie var skoskur landkönnuður sem afrekaði það fyrstur manna að ferðast frá austurströnd Kanada yfir að Kyrrahafsströndinni í Bresku-Kólumbíu.
"Nokkuð harðgerð rós í skjóli, 1 m á hæð. Blómstrar í ágúst, ilmar lítið. H.3.Ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009