'Bonica'
sh. 'Bonica 82'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Uppruni
Marie-Louise Meilland og Jacques Mouchotte, Frakkland, 1981
fræplanta af (Rosa sempervirens × 'Mademoiselle Marthe Carron' (wichurana blendingur) x 'Picasso' (floribunda)
Hæð
60 - 120 cm
Blómlitur
bleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
síblómstrandi, júlí - september
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
frekar viðkvæm
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 6b
Skandinavíski kvarði: H5
Nútíma runnarós með stórum klösum af bleikum blómum sem lýsast með aldrinum. Hún þarf vetrarskýlingu og mjög hlýjan, skjólgóðan vaxtarstað til að blómstra vel utandyra. Í gróðurhúsi koma genin frá klifurrósarforeldrinu í ljós, þar verður hún rúmur 1,5 m á hæð og hlaðin blómum. Þarf stuðning a.m.k. í gróðurhúsi.