'Fritz Nobis'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Uppruni
Wilhem J. H. Kordes II, Þýskalandi, 1940
'Joanna Hill' (terósablendingur) x 'Magnifica' (eplarósarblendingur)
Hæð
150 cm
Blómlitur
bleikur með ferskjulitum tónum í miðjunni
Blómgerð
fyllt
Blómgun
einblómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
ljósgrænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þrífst vel við rétt skilyrði
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 6b
Skandinavíski kvarði: H5
Nútíma runnarós með fylltum, bleikum blómum. Hún þarf sólríkan vaxtarstað í góðu skjóli og helst vetrarskýli, því kal kemur niður á blómgun.