'John Cabot'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Uppruni
Dr. Felicitas Svejda, Kanada, 1969
rosa kordesii x ónefnd fræplanta (D14)
Hæð
um 1,8 m
Blómlitur
skærbleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, HRF - 3
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 2b
Skandínavíski kvarði: H6
Nútíma runnarós úr kanadísku Explorer-seríunni, ræktuð af Dr. Felicitas Svejda. Hún blómstrar fylltum, sterkbleikum blómum.
John Cabot var ítalskur landkönnuður sem var fyrstur Evrópubúa, á eftir Leifi heppna, til að fara í könnunarleiðangur eftir strönd N-Ameríku árið 1497, fimm árum eftir að Columbus hafði fundið N-Ameríku.