'Morden Centennial'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Uppruni
Henry H. Marshall, Kanada, 1972
RSM 84 (komin af R. arkansana) x 'Prairie Princess'
Hæð
80 cm
Blómlitur
bleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
lotublómstrandi, júlí - september
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
takmörkuð reynsla
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 3b
Skandínavíski kvarði: H5
Kanadísk nútíma runnarós úr kanadísku Parkland-seríunni sem blómstrar fylltum, bleikum blómum. Þarf sólríkan og skjólgóðan vaxtarstað.
"Nokkuð harðgerð Kanadisk rós í góðu skjóli. Blómstrar lítið ilmandi blómum frá ágústbyrjun. 80 cm á hæð. H.3.Ísl."
- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009