'Rhapsody in Blue'
Nútíma runnarósir (Modern Shrub)
Origin
Frank R. Cawlishaw, Bretlandi, fyrir 1990
'Summer Wine' (klifurrós) x ónefnd fræplanta ('International Herald Tribune' × {['Blue Moon' × 'Montezuma'] × ['Violacea' × 'Montezuma']})
Height
um 1 m
Flower color
fjólublár
Flower arrangement
hálffyllt
Flowering
lotublómstrandi, júlí - september
Fragrance
sterkur
The age
-
Leaf color
ljósgrænn
Lighting conditions
sól
Soil
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
frekar viðkvæm
Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir. Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður. Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér. Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.
Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir. Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning. Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.
Foreign hardness scales:
USDA zone: 6b
Skandinavíski kvarði: H4
Nútíma runnarós með hálffylltum, fjólubláum blómum. Hún þarf sólríkan vaxtarstað í góðu skjóli og vetrarskýlingu. Getur náð rúmum metra á hæð hér við góð skilyrði.