Aquilegia 'Dragonfly mix'
Garðavatnsberi
Garðavatnsberi er fjölær planta sem getur lifað árum saman, en er stundum frekar skammlíf. Hann blómstrar í júní og fram í júlí og þrífst best á hálfskugga í vel framræstum jarðvegi.
'Dragonfly' er litablanda í breiðum litaskala, sem svipar til gömlu 'McKana's Giants' blendinganna, en plönturnar eru þéttari og ekki nema 50 cm á hæð.
Sáningartími: janúar-febrúar. Fræ þarf kulda meðhöndlun til að spíra vel. Spírunarhlutfall við stofuhita er frekar lágt. Fræ er rétt hulið og best er að geyma sáningarpotta úti í gróðurhúsi eða reit fram á vorið. Fræið spírar þá þegar fer að hlýna. Ef gróðurhús er ekki til staðar má annaðhvort geyma sáningarpottana úti fram á vor og taka svo inn, eða setja fræið í kælingu í ísskáp í 2-4 vikur.
25 fræ í pakka