Dahlia 'Little Robert'
Boltadalía (Pompon)
Boltadalíur eru hávaxnar, um 70-120 cm á hæð. Þær bera kúlulaga blómkörfur með stuttum, rúnnuðum tungukrónum með uppsveigða jaðra þannig að þær mynda einskonar skál. Þær eru smærri en blómkörfur skraut- og kaktusdalía, á bilinu 5-10 cm í þvermál.
'Little Robert' verður um 80-100 cm á hæð og blómstrar tvílitum, hvítum og purpurableikum blómum. Blómlögunin eru millistig á milli bolta (pompon) og skrautdalíu og er þessi sort því stundum flokkuð sem smáblóma skrautdalía.
1 stk. í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Dalíur þurfa langa forræktun inni og hlýjan, skjólgóðan og sólríkan vaxtarstað úti.
Hnýðið er gróðursett í 3 l pott í byrjun mars og ræktað inni á björtum og svölum stað þar til frosthætta er liðin hjá. Gróðurlýsing er ekki nauðsynleg, en gagnleg til að vöxtur verði ekki of teygður. Dalíur þurfa sólríkan vaxtarstað til að ná að blómstra. Þær þurfa vel framræstan jarðveg, því þær vilja ekki standa í bleytu, en þó þurfa þær mikla vökvun og eru fljótar að hengja blöð þegar moldin er orðin of þurr. Gæta þarf þess að nota ekki of köfnunarefnisríkan áburð, því þá verður blómgun minni og blómstönglar teigðir og veikir.
Hnýðin þola ekki frost, en séu þau tekin inn og geymd yfir veturinn er hægt að planta þeim aftur að vori. Ef þau voru ræktuð í potti yfir sumarið er hægt að láta hnýðið þorna í pottinum, geyma pottinn á svölum stað og byrja svo að vökva aftur í mars. Þegar nývöxtur birtist þarf að koma pottinum fyrir á björtum, svölum stað. Það er þó mælt með því að hreinsa moldina vel af hnýðunum og láta þau þorna í nokkra daga og geyma þau svo vafin í dagblöð eða í sandi/vikri yfir vetrarmánuðina. Þau eru svo gróðursett aftur að vori og ræktuð á sama hátt og árið á undan.