top of page
Close up of coral red sweet pea flowers, Lathyrus Nightingale

Lathyrus odoratus 'Nightingale'

Ilmertur

 

Ilmertur eru einærar klifurjurtir sem geta vaxið upp eftir runnum, klifurgrindum eða hverju því sem þær ná að festa sig í. Þær blómstra stórum, oft mikið ilmandi blómum í flestum litum að gulum undanskildum. Geta náð yfir 2 m hæð.

 

'Nightingale' blómstrar kóralrauðum blómum.

 

Sáð í mars - apríl. Fræ lagt í bleyti í volgu vatni í 24 klst. áður en því er sáð. Fræ hulið með þurrum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun eftir 2 vikur við 15-18°C.  Best er að sá 5-6 fræjum í sáningarbox og dreifplanta svo í heilu lagi í 2 l pott til að rækta áfram. Ilmertur þola illa forræktun við stofuhita, best er að hitastigið sé undir 15°C.

 

10 fræ í pakka

    510krPrice
    Tax Included
    Out of Stock

    Tengdar vörur

    bottom of page