Lilium 'Happy Love'
Asíublendingur (Asiatic)
Asíublendingar eru yfirleitt fjölærir hér á landi, ef vaxtarskilyrðin eru rétt. Þeir blómstra 10-15 cm breiðum blómum sem vísa upp á við og fást í miklu litaúrvali. Þeir verða yfirleitt um 90-120 cm á hæð og þurfa því stuðning.
'Happy Love' er lágvaxin sort sem verður um 45 cm á hæð og blómstrar dökk rauðum blómum með enn dekkri miðju.
3 stk í 2 lítra potti
Ræktunarleiðbeiningar
Liljur eru fallegar garðplöntur sem tilheyra ættkvíslinni Lilium í liljuætt (Liliaceae). Margar eru fjölærar hér, eins og t.d. asíublendingarnir, og þær þurfa ekki forræktun inni. Þeim má planta beint út að vori. Vaxtarstaðurinn þarf að vera sólríkur og skjólgóður og jarðvegurinn þarf að vera frjór, vel framræstur og lífefnaríkur.
Aðrir liljuflokkar, eins og t.d. austurlandaliljurnar, eru viðkvæmari og verða ekki langlífar utandyra hérlendis. Þær má rækta í pottum og geyma í gróðurhúsi eða kaldri geymslu yfir vetrarmánuðina.
Hávaxnar sortir þurfa góðan stuðning.