Lobelia Regatta 'Blue Splash'
Brúðarauga
Brúðarauga er fallegt sumarblóm í bláum, hvítum og lillableikum litum sem eru bæði til sem hengiplöntur og beðplöntur. Regatta serían er hengibrúðarauga sem þarf styttri ræktunartíma fram að blómgun en önnur yrki. 'Blue Splash' er hvítt með bláum blómbotni.
Sáð í lok janúar. Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun tekur um 10-14 daga við 21°C. Smáum klösum af sáðplöntum prikklað eftir 5-6 vikur. Ræktunartími frá sáningu að blómgun er ca. 16 vikur.
50 fræ í pakka