Erythronium 'Pagoda' - garðskógarlilja
Garðskógarlilja
'Pagoda' er afbrigði af garðskógarlilju sem blómstrar gulum blómum í maí-júní.
Verður um 30 cm á hæð. Harðgerð skógarbotnsplanta sem þrífst best í hálfskugga í lífefnaríkum jarðvegi.
Afgreitt í 9 cm pottum.
Ræktunarleiðbeiningar
Skógarliljur (Erythronium) eru fjölærar og geta þrifist ágætlega hér á landi. Þær vaxa best í sól part úr degi í frjóum, rökum, en þó vel framræstum jarðvegi.