Allium caesium - dísalaukur
Dísalaukur
Dísalaukur blómstrar ljósbláum blómum í kúlulaga sveip.
Verður um 30-40 cm á hæð.
(Áætlað verð: 6 stk á 1500 kr. / 25 stk á 5020 kr.)
6 stk í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Skrautlaukar (Allium) eru fjölærir í sumum tilfellum. Þeir þurfa sólríkan vaxtarstað og vel framræstan jarðveg til að þrífast vel. Laukarnir eru gróðursettir á þeirri dýpt sem samsvarar því að moldarlagið yfir laukunum sé tvöföld hæð laukanna. Eftir blómgun eru blómstönglarnir klipptir af, en laufið látið vera þar til það fölnar. Þannig safnast öll orkan í laukinn í stað þess að fara í fræmyndun. Þar sem laufið er ekki mjög fallegt á meðan það fölnar, er best að planta laukunum inn á milli fjölæringa sem hylja laufið.