top of page
Lathyrus odoratus 'Turquoise Lagoon'

Lathyrus odoratus 'Turquoise Lagoon'

Ilmertur

 

Ilmertur eru einærar klifurjurtir sem geta vaxið upp eftir runnum, klifurgrindum eða hverju því sem þær ná að festa sig í. Þær blómstra stórum, oft mikið ilmandi blómum í flestum litum að gulum undanskildum. Geta náð yfir 2 m hæð.

 

'Turquoise Lagoon' blómstrar tvílitum, bláum og fjólubláum blómum.

 

Fræ frá Chiltern Seeds.

 

Sáð í mars - apríl. Fræ lagt í bleyti í volgu vatni í 24 klst. áður en því er sáð. Fræ hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Best er að sá 5-6 fræjum í sáningarbox og dreifplanta svo í heilu lagi í 2 l pott til að rækta áfram. Ilmertur þola illa forræktun við stofuhita, best er að hitastigið sé undir 15°C.

 

10 fræ í pakka

    340krPrice
    Tax Included
    Only 1 left in stock

    Tengdar vörur

    bottom of page