Lathyrus odoratus 'Watermelon'
Ilmertur
Ilmertur eru einærar klifurjurtir sem geta vaxið upp eftir runnum, klifurgrindum eða hverju því sem þær ná að festa sig í. Þær blómstra stórum, oft mikið ilmandi blómum í flestum litum að gulum undanskildum. Geta náð yfir 2 m hæð.
'Watermelon' blómstrar laxableikum blómum.
Fræ frá Chiltern Seeds.
Sáð í mars - apríl. Fræ lagt í bleyti í volgu vatni í 24 klst. áður en því er sáð. Fræ hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Best er að sá 5-6 fræjum í sáningarbox og dreifplanta svo í heilu lagi í 2 l pott til að rækta áfram. Ilmertur þola illa forræktun við stofuhita, best er að hitastigið sé undir 15°C.
10 fræ í pakka