top of page
Narcissus bulbocodium 'Spoirot' - pilsalilja

Narcissus bulbocodium 'Spoirot' - pilsalilja

Pilsalilja

 

'Spoirot' er afbrigði af pilsalilju með fölgulum - hvítum blómum.

Yrkið er upprunnið í Tasmaníu og er heitið tilvísun í frægustu sögupersónu rithöfundarins Agöthu Christie, Poirot.  Pilsalilja er í viðkvæmari kantinum og verður ekki fjölær hér á landi. Þarf sólríkan vaxtarstað og léttan jarðveg sem drenar vel.

Verður um 10-20 cm á hæð.

 

(Áætlað verð: 8 stk á 1160 kr. / 50 stk á 5650 kr.)

 

8 stk. í pakka

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Hátíðarliljur (páskaliljur) eru fjölærar og í flestum tilvikum harðgerðar. Þær vaxa best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Laukarnir eru gróðursettir á þeirri dýpt sem samsvarar því að moldarlagið yfir laukunum sé tvöföld hæð laukanna.  Eftir blómgun eru blómstönglarnir klipptir af, en laufið látið vera þar til það fölnar. Þannig safnast öll orkan í laukinn í stað þess að fara í fræmyndun. Þar sem laufið er ekki mjög fallegt á meðan það fölnar, er best að planta laukunum inn á milli fjölæringa sem hylja laufið.

1.070krPrice
Tax Included
Out of Stock

Tengdar vörur

bottom of page