Petunia Mambo F1 'Blue Vein'
Tóbakshorn (compact multiflora)
Tóbakshorn henta vel í ker og hengipotta. Multiflora afbrigði hafa fleiri og minni blóm en grandiflora afbrigði og blómin eru veðurþolnari. 'Mambo Blue Vein' blómstrar hvítum blómum með fjólubláu æðamynstri í miðju.
Sáð í janúar-febrúar. Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun eftir 7-10 daga.
20 fræ í pakka