Túlipani 'Orange van Eijk'
Túlipani (Darwin hybrid)
'Orange van Eijk' er Darwin-blendingur sem blómstrar stórum appelsínugulum blómum. Óreynd sort, svo ekki vitað hvort hún blómstrar oftar en einu sinni.
Verður um 55 cm á hæð
(Áætlað verð: 8 stk á 790 kr. / 50 stk á 3620 kr.)
8 stk. í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Túlipanar blómstra yfirleitt bara vel fyrsta vorið eftir að þeir eru gróðursettir. Þó eru nokkrar undantekningar þar á, en það eru helst Darwin-blendingar (Darwin Hybrids) og nokkrar villitúlipana-tegundir sem eru fjölærar hér. Þeir þrífast best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða skugga part úr degi og hávaxnari sortir þurfa sæmilega gott skjól til að blómstilkarnir brotni ekki í roki. Hæfileg gróðursetningardýpt er þreföld hæð lauksins, þ.e. moldarlagið yfir lauknum samsvarar tvöfaldri hæð hans.