Viola Inspire Plus F1 'Orange Blotch'
Stjúpur
Stjúpur eru sumarblóm sem henta vel í ker og út í beð. Inspire Plus serían hefur þéttan, jafnan vöxt og stór blóm. 'Orange Blotch' er afbrigði sem blómstrar appelsínugulum blómum með dökkri miðju.
Sáð í janúar. Fræ hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Fræ spírar betur í myrkri, svo betra að setja sáningarbox ekki undir ljós fyrr en fræið hefur spírað. Spírun eftir 7-10 daga. Blómgun um 3 mánuðum eftir sáningu.
20 fræ í pakka