Amelanchier alnifolia
Hlíðaramall
Rósaætt
Rosaceae
Hæð
2 - 4 m
Blómlitur
hvítur
Blómgun
lok maí - júní
Blómgerð
-
Aldin
dökkblá ber
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frjór, þurrkþolinn
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
þokkalega harðgerður
Heimkynni
vestanverð N-Ameríka
Amelanchier, amall, er lítil ættkvísl um 20 tegunda í rósaætt, Rosaceae, með útbreiðslu um tempruð belti N-Ameríku, Evrópu og Asíu. Mestur tegundafjöldi vex í N-Ameríku. Þetta eru tré eða runnar með fínlegu laufi, klösum af hvítum blómum og sumar tegundir bera æt ber.
Fjölgun:
Sumargræðlingar.
Sáning: sáð að hausti eða vetri.
Fræi best sáð að hausti - fræ hulið og haft úti á skýldum stað fram á vor. Pottar síðan teknir inn í stofuhita fram að spírun.
eða
Fræi blandað í rakan vikur og geymt í plastpoka í ísskáp í 3-4 mánuði áður en því er sáð og haft við stofuhita fram að spírun.
Hlíðaramall er fallegt, smágert garðtré sem er oftast margstofna. Blómstrar hvítum blómum snemmsumars og þroskar æt, dökkblá ber. Fær mjög fallega gula og rauða haustliti. Þrífst vel í sól eða hálfskugga, en því meiri sem sólin er, því betri verður berjauppskeran. Þrífst best í frjóum, veik súrum jarðvegi, en þolir basískari jarðveg og nokkurn þurrk. Nokkuð harðgerður.