Chamaecyparis lawsoniana 'Little Spire'
Fagursýprus
Grátviðarætt
Cupressaceae
Hæð
1,5 m
Blómlitur
kk - eldrauður
Blómgun
-
Blómgerð
könglar
Aldin
könglar
Lauflitur
dökkgrænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frjór, rakur
pH
súrt - hlutlaust
Harðgerði
þarf skjólgóðan stað
Heimkynni
garðayrki
Ættkvíslin Chamaecyparis tilheyrir grátviðarætt, Cupressaceae. Ættkvíslin telur sjö tegundir með heimkynni í austur Asíu og vestanverðri N-Ameríku. Tegundir ættkvíslarinnar vaxa í skuggsælum strandskógum þar sem úrkoma er mikil. Þær þurfa því gott skjól og jafnan jarðraka.
Fjölgun:
Græðlingar síðsumars
Yrki af fagursýprus með dökkgrænu barri. Hann þarf skjólgóðan stað í sól eða hálfskugga í frjóum, rökum, vel framræstum, veik súrum jarðvegi. Mikilvægt er að verja hann fyrir morgunsól á vorin, hann getur sólbrunnið illa í frosti. Ef hann nær að vaxa áfallalaust er hann keilulaga í vexti.