Chamaecyparis lawsoniana 'Stardust'
Fagursýprus
Grátviðarætt
Cupressaceae
Hæð
allt að 3 m, lægri hér
Blómlitur
-
Blómgun
-
Blómgerð
könglar
Aldin
könglar
Lauflitur
gulgrænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frjór, rakur
pH
súrt - hlutlaust
Harðgerði
þarf skjólgóðan stað
Heimkynni
garðayrki
Ættkvíslin Chamaecyparis tilheyrir grátviðarætt, Cupressaceae. Ættkvíslin telur sjö tegundir með heimkynni í austur Asíu og vestanverðri N-Ameríku. Tegundir ættkvíslarinnar vaxa í skuggsælum strandskógum þar sem úrkoma er mikil. Þær þurfa því gott skjól og jafnan jarðraka.
Fjölgun:
Græðlingar síðsumars
Yrki af fagursýprus með gulgrænu barri sem er ljósgult á nývexti og verður svo ljósgrænt. Hann þarf skjólgóðan stað í sól eða hálfskugga í frjóum, rökum, vel framræstum, veik súrum jarðvegi. Mikilvægt er að verja hann fyrir morgunsól á vorin, hann getur sólbrunnið illa í frosti. Getur orðið 3 m á hæð í hlýrra loftslagi, en verður varla meira en meter á hæð hér. Ef hann nær að vaxa áfallalaust er hann keilulaga í vexti.