Picea sitchensis
Sitkagreni
Þallarætt
Pinaceae
Height
allt að 40 m
Flower color
kk gulur, kvk rauður
Flowering
maí - júní
Flower arrangement
reklar
The age
könglar
Leaf color
grænn
Lighting conditions
sól - hálfskuggi
Soil
frekar frjór, rakur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
harðgert
Homecoming
N-Ameríka
Ættkvíslin Picea, greni, er ættkvísl um 35 tegunda í þallarætt, Pinaceae. Þetta eru stórvaxin tré með heimkynni dreifð um barrskógabeltið á norðurhveli jarðar.
Fjölgun:
Sáning, sáð í janúar-febrúar
Fræ lagt í bleyti í sólarhring og svo sáð í sáðbox og fræ rétt hulið fínum vikri eða sáðmold. Þarf ekki kaldörvun, en spírun verður betri ef fræið er kælt í 30 daga og svo haft við stofuhita fram að spírun.
Sitkagreni er stórvaxin, harðgerð grenitegund sem getur náð 40 m hæð. Það er mjög vind- og seltuþolið, en allt of stórvaxið fyrir heimilisgarða. Barrið er dökkgrænt, en nývöxtur skærgrænn. Vex best í sól eða hálfskugga í frekar frjóum, hæfilega rökum jarðvegi.