top of page
Mýrastigi

Sorbus americana

Knappareynir

Rósaætt

Rosaceae

Hæð

4 - 6 m

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júní

Blómgerð

-

Aldin

rauð ber

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Tegundin vex villt í norðaustanverðri N-Ameríku.

Ættkvíslin Sorbus, reyniviðir, er stór ættkvísl um 100-200 tegunda í rósaætt, Rosaceae með heimkynni á norðurhveli. Ein tegund, reyniviður, er innlend. Sumir grasafræðingar vilja skipta ættkvíslinni upp í fjórar ættkvíslir eftir lögun laufblaða og aldingerð. Eru þá tegundir með fjaðrað  lauf áfram í Sorbus en tegundir með heil lauf í ættkvíslinni Aria. Verður þeirri skiptingu ekki fylgt hér.

Fjölgun:


Græðlingar

Sumargræðlingar


Sáning - best sáð að hausti

Fræin spíra best ef þau eru hreinsuð úr berjunum og aldinkjötið þvegið vel af þeim. Fræin rétt hulin með vikri og höfð úti á skýldum stað fram á vor. Fræ spírar við lágt hitastig.


Knappareynir er smávaxið tré sem verður um 10 m hérlendis. Það blómstrar hvítum blómum í júní-júlí og þroskar rauð ber. Meðalharðgert, kelur svolítið á skjóllitlum stöðum.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page