top of page
Mýrastigi

Sorbus aucuparia

Ilmreynir

Rósaætt

Rosaceae

Hæð

5 - 12 m

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júní

Blómgerð

-

Aldin

rauð ber

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

Evrópa og N-Asía

Ættkvíslin Sorbus, reyniviðir, er stór ættkvísl um 100-200 tegunda í rósaætt, Rosaceae með heimkynni á norðurhveli. Ein tegund, reyniviður, er innlend. Sumir grasafræðingar vilja skipta ættkvíslinni upp í fjórar ættkvíslir eftir lögun laufblaða og aldingerð. Eru þá tegundir með fjaðrað  lauf áfram í Sorbus en tegundir með heil lauf í ættkvíslinni Aria. Verður þeirri skiptingu ekki fylgt hér.

Fjölgun:


Græðlingar

Sumargræðlingar


Sáning - best sáð að hausti

Fræin spíra best ef þau eru hreinsuð úr berjunum og aldinkjötið þvegið vel af þeim. Fræin rétt hulin með vikri og höfð úti á skýldum stað fram á vor. Fræ spírar við lágt hitastig.


Ilmreynir er harðgert tré sem getur náð 12 m hæð hér á landi. Það blómstrar hvítum blómum í júní og þroskar rauð ber. Rauðir og gulir haustlitir.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page