![]() |
---|
Sorbus bissetii
Rúbínreynir
Rósaætt
Rosaceae
Hæð
4 - 6 m
Blómlitur
hvítur
Blómgun
júní
Blómgerð
-
Aldin
ber vínrauð í fyrstu, verða svo dökk bleik
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frjór
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
Himalaja, Kasmír
Ættkvíslin Sorbus, reyniviðir, er stór ættkvísl um 100-200 tegunda í rósaætt, Rosaceae með heimkynni á norðurhveli. Ein tegund, reyniviður, er innlend. Sumir grasafræðingar vilja skipta ættkvíslinni upp í fjórar ættkvíslir eftir lögun laufblaða og aldingerð. Eru þá tegundir með fjaðrað lauf áfram í Sorbus en tegundir með heil lauf í ættkvíslinni Aria. Verður þeirri skiptingu ekki fylgt hér.
Fjölgun:
Græðlingar
Sumargræðlingar
Sáning - best sáð að hausti
Fræin spíra best ef þau eru hreinsuð úr berjunum og aldinkjötið þvegið vel af þeim. Fræin rétt hulin með vikri og höfð úti á skýldum stað fram á vor. Fræ spírar við lágt hitastig.
Rúbínreynir er smávaxið tré sem getur verið ein- eða margstofna. Það blómstrar hvítum blómum í júní og þroskar ber sem eru vínrauð í fyrstu, en lýsast svo og verða dökk bleik. Rauðir haustlitir. Harðgert.