![]() |
---|
Sorbus reducta
Dvergreynir
Rósaætt
Rosaceae
Hæð
20-50 cm
Blómlitur
hvítur
Blómgun
júní
Blómgerð
-
Aldin
fölbleik ber
Lauflitur
dökk grænn
Birtuskilyrði
sól - hálfskuggi
Jarðvegur
vel framræstur, frjór
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerður
Heimkynni
Kína
Ættkvíslin Sorbus, reyniviðir, er stór ættkvísl um 100-200 tegunda í rósaætt, Rosaceae með heimkynni á norðurhveli. Ein tegund, reyniviður, er innlend. Sumir grasafræðingar vilja skipta ættkvíslinni upp í fjórar ættkvíslir eftir lögun laufblaða og aldingerð. Eru þá tegundir með fjaðrað lauf áfram í Sorbus en tegundir með heil lauf í ættkvíslinni Aria. Verður þeirri skiptingu ekki fylgt hér.
Fjölgun:
Græðlingar
Sumargræðlingar
Skipting
Sáning - best sáð að hausti
Fræin spíra best ef þau eru hreinsuð úr berjunum og aldinkjötið þvegið vel af þeim. Fræin rétt hulin með vikri og höfð úti á skýldum stað fram á vor. Fræ spírar við lágt hitastig.
Dvergreynir er lágvaxinn runni sem verður aðein um 20-50 cm á hæð. Hann breiðir úr sér með jarðstönglum og því hægt að fjölga með skiptingu. Blómin eru hvít og hann þroskar fölbleik ber. Gylltir og rauðir haustlitir.