Taxus baccata 'Fastigiata Robusta'
Ýviður
Ýviðarætt
Taxaceae
Height
óþekkt hér, 8-12 m erlendis
Flower color
kk gulbrúnn, kvk grænn
Flowering
júní
Flower arrangement
The age
rautt aldin
Leaf color
dökkgrænn
Lighting conditions
sól - skuggi
Soil
vel framræstur, má vera kalkríkur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Toughness
þrífst vel
Homecoming
garðayrki, tegundin vex villt í Evrópu og V-Asíu
Taxus, ýviðir, er lítil ættkvísl í ýviðarætt, Taxaceae. Allar tegundir ættkvíslarinnar eru náskyldar og sumir grasafræðingar vilja skilgreina þær allar sem undirtegundir af ýviði, Taxus baccata. Aðrir skilgreina 9 tegundir. Ýviðir hafa flatar, dökkgrænar nálar sem eru mjúkar viðkomu og þroska köngla sem líkjast opnum rauðum berjum sem umlykja eitt fræ. Þeir eru oftast einkynja (þ.e. plöntur eru annaðhvort kk eða kvk), þó það sé ekki algilt. Allir hlutar eru eitraðir að berjunum undanskildum, þar með talin fræin. Nokkur krabbameinslyf hafa verið þróuð út frá taxane eiturefnunum sem finnast í ýviðartegundum. Viðurinn er sveigjanlegur og var notaður í bogagerð. Ýviðir eru mikið notaðir í formklippingar erlendis.
Fjölgun:
Sumargræðlingar
'Fastigiata Robusta' er yrki af ývið með súlulaga vöxt og dökkgrænt barr. Uppruni þess var planta sem óx villt í Sviss og var uppgötvuð þar rétt fyrir seinni heimstyrjöldina. Það getur náð 12 m hæð erlendis, en hversu hátt það nær að teygja sig hér á landi á eftir að koma í ljós. Ýviður er hægvaxta og þetta yrki er 20-50 ár að ná fullri stærð erlendis. Ýviður er nokkuð skuggþolinn og getur þrifist hvort sem er í sól eða skugga. Hann þrífst best í vel framræstum jarðvegi, sem má vera kalkríkur, en þarf ekki að vera það.